GoPro Self Service 

GoPro Self Service býður upp á vefgátt sem tengir fyrirtæki við viðskiptavini og samstarfsmenn sína.

Self Service vefgáttin býður upp á þjónustu og upplýsingaveitu sem er aðgengileg allan sólarhringinn svo viðskiptavinir og aðrir tengiliðir hafi greiðan aðgang að þjónustu hvar og hvenær sem er.

Lausnin inniheldur formasmið sem gerir nýjar þjónustur einfaldar og fljótlegar í uppsetningu. 

Þegar þjónustubeiðnir eru sendar frá vefgáttinni myndast sjálfvirkt mál í GoPro bakendakerfinu sem er sett á viðeigandi starfsmann. Umsóknaraðilinn getur fylgst með stöðubreytingum og fylgiskjölum í gegnum vefgáttina, auk þess að senda inn skilaboð sem tengjast málinu. GoPro Self Service eykur því bæði gagnsæi og skilvirkni, bætir þjónustu og lækkar rekstrarkostnað.